Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Þið eruð aumkunarverð Ágúst....

Það kemur ekkert á óvart að þið samkundarfélagið sem nefnist Samfylking brjótist út núna eins og um einhverja dýrlinga væri að ræða. Ég held nú síður þið undirstrikið enn og aftur valdníðslu þörfina með útspili ykkar gegn samstarfsflokknum ykkar, ekki það að ég er dauðfegin að þið sprengduð þetta samstarf í loft upp. Þið sáuð ykkur ekki fært að koma með neinar lausnir af því að þið hafið engar og skuldinni skelt á Sjálfstæðisflokkinn og framsókn, Geir stendur eins og postulínsstytta málsvari fyrir alla. Þið aumkunarbandalagið standið hjá eða í besta falli gefið sjónvarpamanni fokkmerki vegna þess að USA gaf skít í okkur. Þið hafið gert í brækurnar sem og sjálfsræðisflokkurinn ekki reyna að skolast undan þeirri ábyrgð. Stjórnmálaflokkar segirðu, þeir eru allir með brækurnar á hælunum otandi sínum tota eftir völdum. Ég er búin að gefast upp á ykkur póllíunum sem kallist pólitíkusar, svik og prettir er það sem þið uppskerið.

 


mbl.is Óhjákvæmilegt að kjósa í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er engin aðkoma ríkissins til okkar "þrælanna".

Ég leit í bæinn í morgun og viti menn, talandi um að bregðast strax við þá voru öll tiltæk hreinsitæki og bílar að bóna Alþingishúsið að utan, það væri nú  flott ef einhver úr þessari vonlausu ríkisstjórn kæmi nú fram með lausnir jafn hratt fyrir okkur þrælanna eins og að þrífa húsið. Þó að allir viti að þessi lausn er tímabundin því  húsið fer undir egg og skít aftur,,held ég. Mótmælendurnir eru þá allavega atvinnuskapandi og það er meira en hægt er að segja um þessa ríkisstjórn.


mbl.is Aðkoma ríkisins vart marktæk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkis(ó)stjórn og Samfylkingin er búin að guggna undan mótmælunum til hamingju mótmælendur.. Þið UNNUÐ!!!

Ég held það að eftir opnunarræðu Geirs í dag og allra þeirra sem tjáðu sig á þingi, að ég sé staddur á einhverri plánetu sem er ein stór afneitun. Það vill engin tala við fólkið, það vill engin koma og staldra við vandamálið og gefa út örlitla von sem gleður hjartað það gerði Barak Obama í dag, en þessi skríll sem þessu landi stjórnar, gerðu það ekki heldur eru þeir búinir að stinga stærsta vandamáli sögunnar ofan í skúffu  ég held að þeir ættu að taka svona pólitíkusa sér til fyrirmyndar og búa til örlitla von. Þetta er ríkis(ó)stjórn

Samfylkingin setti fram þingsáliktunartillögu af 10 þingmönnum, sem í fljótu bragði leyfir þinginu að fella ríkisstjórninna strax og kjósa. Fylking innan Samfylkingarinnar undir stjórn Helga Hjörvars lögðu þetta til þvert ofan í kokið á Össuri og formanninunm Ingibjörgu. Því miður elskurnar þá er Samfylkingin Over. Við verðum að athuga vel hvað hægt er að stilla upp í staðin, en sofar so good. Það hriktir í stoðum ríkisstjórnarrinnar þá sérstaklega X-S og við hlið þeirra stendur hálf skelkaður hópur Sjálfstæðismanna sem vart trúir því að Ísland sem hefur verið undir þeirra stjórn nánast frá fullveldi sé að hrunum komið. Þetta er staðreynd elskurnar og annað hvort fáið þið ykkur áfallahjálp og pillur segjið af ykkur hið fyrsta eða FARIÐ AÐ FOKKING VAKNA OG BYRJIÐI AÐ LEYSA ÓTTAN HJÁ FÓLKI.


Flott mótmæli...

Ég skellti mér í bæinn uppúr 10 í kvöld og bjóst ekkert endilega við einhverjum svaka látum en þar hafði ég á röngu að standa. Brennu lyktin og kurrið setti strax í mann smá fiðring og skyndilega fylltist maður af einhverjum eldmóð. Þarna var fólk á öllum aldri sumir görguðu aðrir sátu á bekkjum og töluðu saman um þann fora pitt sem búið væri að koma landinu okkar í. Skemmtilegt var að sjá að pöbbarnir í kringum Austurvöll voru opnir og fólk stóð úti og drakk ýmist bjór eða kafii. þetta eru semsagt fyrirmyndar mótmæli þó að Alþingishúsið sé aðeins skítugt þá er hægt að hreinsa það og bæta rúður en varla er hægt að bæta fólki þann skaða sem það hefur orðið fyrir og sú reiði endurspeglast  90% af því fólki sem stendur þarna niður frá og mótmælir, sem sagt þetta eru flott mótmæli og ekkert að því að láta sjá sig. Mér sýnist að fólki sé orðið alvara núna......


mbl.is Mótmæli halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er íslensk pólitík búin að vera.

Þegar búið var að kjósa eftir síðustu kosningar fengu þessir flokkar yfirburða kosningu og maður trúði eins og asni á lýðræðið. Allar götur síðan hafa verið vandamál að hrjá þetta samstarf og nú síðast þvingunarútspil samfylkingarinnar varðandi EES. Ég veit t.d ekkert um EES það hefur engin kynnt mér EES kost þess og galla. Ég veit ekki heldur hvort þessir flokkar séu yfir höfuð með það á hreinu hvort það sé eitthvað vit að sækja um aðild að aðild að aðildarviðræðum, svona er þetta nú flókið. Miðað við þá frétt um daginn að það væri svo kölluð leyniregla hjá EES varðandi auðlindir ríkja innan EES sem skýrði það í stuttu máli að ef kreppir að þá má EES eða stjórn hennar meta hvort það megi ekki koma tekjum frá landi sem býr yfir auðlind t.d gasi  til annara landa innan sambandsins með beinum hætti. Þarna var talað um gasdeilu  Rússa og Úkraínu, leynimakkið átti að bitna á gasforða Breta og ætlaði EES að ganga í þann forða og dreyfa vítt og breytt því öll eggin eru í sömu körfunni hjá EES þegar uppi er staðið. Einhverjir sögðu að þessi saga væri kjaftæði og skyndilega dó þessi umræða, það böggar engin stórþjóð eins og Breta við höfum brennt okkur á því.Gefum okkur það að við værum í EES og fiskurinn og rafmagnið væri af skornum skammti innan EES þá held ég að einhver fulltrúi frá Íslandi sem kæmi inn á þingið og ætlaði sér að segja þessum mönnum til syndanna vegna einhverjar leynireglu sem við vissum ekkert um kæmi heim með skottið á milli lappana og við værum farin að sjá öðrum löndum fyrir mat og orku fyrir klink. Við erum bara örlítil eyja einhversstaðar í Atlandshafi og 80 % af heiminum vita ekki að við séum til eða hvar við erum. Við verðum að vita takmörk okkar og haga okkur eftir því, við erum núna í dag loksins að átta okkur á því að við eigum ekkert í þetta. Bandaríkjaherinn gaf okkur puttann, Rússar fljúga hér yfir eins og þeim listir, Bretar beita hryðjuverkalögum og IMF setur okkur skilyrði sem engin þjóð hefur fengið yfir sig áður ekki einu sinni Equador. Ég held að það sé alveg sama hvort það verði kosið aftur eða ekki, engum þessara flokka er lengur treystandi, íslensk pólitík er búin að vera. Það byrtist bara í málþófi andstöðunnar og lítilsvirðingu stjórnarinnar hverju sinni. Það er einfaldlega komin upp patt staða og alger glundroði, Vg halda að þeir séu næstir inn og básúna vitleysunni á hverjum degi og svo var Framsóknarflokkurinn að spila undir fyrr í kvöld. Við þurfum eitthvað nýtt, nýja hugsun, vakningu á þjóðinni,það sem er að gerst í dag er að drepa alla. Og þeir sem eru í aðstöðu til að gera eitthvað haga sér eins og bavíanar. Það er engin lausn í farveginum hjá þinginu,hvorugu genginu það er alveg á hreinu. Við hin getum mótmælt og mótmælt en það er gert grín enda ekkert skrítið menn eru farnir að mæta í grímubúningum til að mótmæla mótmælunum.Hvað leysir sú vitleysa, ég held hinsvegar að þessi mótmæli egi eftir að enda með einhverri skelfingu því miður ekki það að ég standi fyrir því heldur er leikurinn farin að harðna og engin lausn í aðsigi. Þá bera mótmælin engan árangur og það endae bara með skelfingu. Það eru allir að berjast um einhver völd eða aðalhlutverk allsstaðar, mótmælendur,Þingmenn,forstjórar alveg sama allt sníst þetta orðið um að fá að vera no 1. Við leysum ekkert ef þetta heldur svona áfram. Okkur vantar unga fólkið úr öllum flokkunum sem horfa ekki í x eitthvað heldur bara eitt Ísland, fólk sem hefur reynslu úr atvinnuveginum og námi til að koma okkur út úr þessu. Köllum það bara X-Ísland, hitt er orðið úrelt og sumstaðar er komin upp úrkynjunarpólitík sem á enga samleið með framtíðinni. Nú er tími unga fólksins sem hefur menntun og reynslu til að hjálpa Íslandi á flot runnin upp.


Hver mun sjá um ráðningu bankastjóranna.

Eftir allt sukkið, svínaríið og klíkuvibbann í ráðningum hjá ríkinu undanfarin ár hefur maður orðið áhyggjur hver fari með ráðningu nýrra bankastjóra. Ég veit að margir vinir stjórnmálamanna hugsa sér glatt til glóðarinnar nú í kreppunni um traustasta og öruggasta jobbið í dag, sem verður auglýst væntanlega í blöðum. Þar sem að ríkisstjórnarflokkarnir hafa gefið í skin, ef maður les á milli línanna, þá verður kosið fyrr en síðar sökum evrópusambands umræðu, sem allt í einu er orðin að gullinu er reddar okkur Íslendingum úr skíttnum ef marka má sundurtætta skoðun samfylkingarinnar í því samhengi en einsog hefur komið fram þá slítur samfylkingin samstarfinu við sjálfstæðisflokkinn ef hann hlíðir ekki og samþykkir aðild,,,,,,, þetta er útúrdúr, ég tel að þetta fólk sem stjórnar í dag ætti ekki að koma nærri þessum ráðningum ,sökum hættu á spillingu.Þetta fólk veit ekkert hvað er að gerast í flokkunum sínum eða í samstarfinu, þá er bara ekki hægt að fela þeim þessa ábyrgð því ábyrgðinni er þeim ekki treystandi fyrir. Fáum fagfyrirtæki eða fagaðila til þess og engan annan.


Hemmi farðu !

Það er ansi gott að vera í nokkurri yfirþyngd og commenta á fótboltann slít er mjög skemmtilegt enda hefur  fótboltinn einmitt það uppá að bjóða,skemmtun og umræður. Það er samt einhvernvegin þannig að maður fer að halda með íslensku fólki sem er að keppa út í hinum harða heimi íþróttanna, enda er það eðlilegt við erum fámenn þjóð og eignum okkur þá sem standa sig vel. Þess vegna er orðið ansi pínlegt að horfa á íslenska Víkinginn og baráttujaxlinn Hermann Hreiðarsson verða fyrir barðinu á einhverju Arsenal buffi. Eyja peyjinn á margt betur skilið en það að vera stillt upp sem rottu í sökkvandi skipi og hann lofaður einhverju svo að hann yfirgefi nú ekki þetta sökkvandi skip. En sumum skipum er nú ekki bjargandi ef það rennur ekki af skipstjóranum það mætti einmitt halda að Arsenal buffið Tony Adams sé með meinloku gagvart okkar manni. Ef hann hefur tækifæri á hann að fara, Redknapp er farinn og klúbburinn fékk það sem hann átti inni eftir skemmtilega uppbyggingu þá er ég að meina FA bikarinn. Ég hef það á tilfinningunni að tími þessa klúbbs sé liðin og hlíðin sé brött niður og ef Hermann hefur tækifæri á að fara ætti hann að drífa sig, hann er einfaldlega of góður fyrir þennan klúbb hvað þá þennan stjóra. 'Eg trúi því einfaldlega ekki að fæterinn og baráttujaxlinn sé sáttur við klappstýruhlutverk (sorry,) hann á allt annað skilið. Svo getur verið að hann sé komin með það sem hann vill og spilar pokerinn vel,  hvað veit ég, ég er bara aðdáandi uppí sófa í nokkurri yfirþyngd, manni finnst þetta bara leiðinlegt fyrir hans hönd.


mbl.is Hermann á varamannabekknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað svo Framsókn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, til hamingju með nýja jobbið. Mér þykir þú ansi djarfur og kokhraustur að kasta þér niður á Hverfisgötu og tekur formanninn nokkuð örugglega. Þetta kom mér svo sannarlega á óvart, ég hélt að framsóknarflokkurinn hefði ekki verið svona langt leiddur í það að verða ónýtur. Það er gott fólk sem þú færð bæði Höskuld og Magnús jafnvel Sif en restin er auðvitað handónýt. Svo hefur poppað upp alskyns fólk þarna inn á Hverfisgötuna t.d Guðmundur Steingrímsson, hann er fínn. Hvað svo kallinn minn, Jónína Ben hefur farið mikið og gefið út að hún sé komin í framsókn og framsóknarflokkurinn sé besti viðreinsnarflokkurinn eftir bankahrunið. 'Eg myndi í þínum sporum láta hana hætta að tjá sig opinberlega um flokkinn. Þú kveikir ekki í húsi og upphefur svo sjálfan þig á því að hafa slökkt,,,. ´Þessi niðurstaða kom mér semsagt á óvart og það verður afar spennandi að sjá hvað þú gerir við flokkinn. Ég bíð jafn spenntur yfir þáttunum 24 og úkomu framsóknarflokksins. Gangi þér allt í haginn. ´

P.s Ég myndi sækja Bjarna Harðar aftur hann er þó eini maðurinn sem hefur sagt af sér við að segja satt, en þú átt slatta af liði þarna sem hefur logið sí og æ og það belgir sig enn út.


mbl.is Sigmundur kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkun staðgreiðslu í 40 %

Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér hvort ríkisstjórnin hafi nú ekki átt að hækka staðgreiðsluna hjá okkur upp í 40 % og í staðin sleppt nefsköttun. Þegar mússíkin hljóðar þannig hjá okkar frábæru ríkisstjórn að næstu árin verði okkur mjög erfið þá átta ég mig ekki alveg á því afhverju skattprósentuhlutfallið er ekki hækkað. Við fólkið sem kalla má þræla auðvaldsins erum hvorteð er með skítinn upp á bak eftir mikilmennskubrjálæðið hjá nokkrum köllum. Ég hefði haldið að ef við gerðum þetta í 1- 2 ár innist hallinn hraðar niður. Ég væri til í að fá að sjá hjá einhverjum snillingi þetta reiknað. Hvað meðalmaður í launum c.a 250.000 tapaði á þessari hækkun en hvað ríkið fengi á móti og hvort að þessi 4% skiptu einhverju máli næstu 3 árin.

 En munum það að árið 2009 var það sannað að þrælahald er enn við lýði hér á Íslandi þökk sé þeim sem eru allir fluttir í villurnar sínar úti í heimi. Fokking fokk !!


Þetta var nú óþarfi.

Mér finnst allt í lagi að menn fái nú að brugga eina og eina tunnu svona í kreppunni, hafa þessir menn sem vinna í löggunni ekkert farið í ríkið nýlega.
mbl.is Lokuðu bruggverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband