Þetta er ÍSLAND

það er ekki að spyrja að okkur Íslendingum, við erum alltaf boðnir og búnir til að hjálpa í neyð.Þessar hetjur okkar eru akkúrat núna að upplifa manns verstu martröð sjálfviljugir.Megi Guð blessa störf þeirra allra og komi þeim öllum heilum heim. Gangi ykkur vel, bænir mínar verða hjá ykkur öllum og þolendum ykkar.
mbl.is Sáu mikla eyðileggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er búið að slátra íslenskri samheldni og baráttuvilja.

Hvað er eginlega í gangi, Ólafur gefur tóninn á BBC og fær hrós skilið,Össur kælir Bretann,þá virðist vera að Steingrímur hafi hitt einhvern þarna og talað sagt okkur loks að allt hafi gengið vel ok gott mál. Hvað er Gylfi þá að koma allt í einu og hamra niður ríkissstjórnarsamstarfið ef við ÍSLENDINGAR fellum frumvarpið.Þetta er hroki,ofaní allt annað,loksins þegar maður hélt að þjóðin ætlaði virkilega að sýna fram á það að hún gæti staðið saman,djö.... er maður vitlaus. Ég vil að Eva Joly taki þetta mál að sér strax og leiði verkefnið þessir a..kettir á Alþingi geta ekki klárað málið nema að stúta okkur endanlega sem þjóð,þessi auladeila er að skipta landinu í 3 hópa, JÁ-NEI-ALVEG SAMA. Ég er að búa til 4 hópinn ÞREYTTUR.

Fólk þarna á Alþingi farið nú að haga ykkur eins og fullorðin, ég mæli með að Þjóðleikhúsið setji upp eina boðssýningu á Dýrunum í hálsaskógi ykkur til heiðurs, til að hjálpa ykkur með að rifja upp hvernig samvinna er,eins og við munum þessa frábæru setningu,"ÖLL DÝRIN SKÓGINUM EIGA AÐ VERA VINIR" nú er mál að linni þetta rop vinstri hægri verður að stoppa hér með.


Eva Joly formaður samninganefndar no3. Áfram Ísland

Þetta er borðliggjandi.Loksins þegar að Íslendingar átta sig á hvað best fyrir okkur s.s að snúa bökum saman hvort sem þeir eru á þingi eða ekki, slíðra sverðin,fyrirgefa og vinna saman sem heild og eitt landslið getur allt gerst. Fáar þjóðir í heiminum eru eins kjarkaðar,baráttuglaðar og vinnusamar eins og við Íslendingar þegar á reynir, mörg dæmi hafa sannað það, allt frá keppnisíþróttum og virkilegri báráttu,t.d landhelgisdeila,Ólimpíuleikar og Júróvísíon en í þessum greinum flikkjst allir saman og stolt Íslands ber á góma hjá hverjum kjafti,nema þegar við töpum því að við erum tapsár,einfaldlega út af uppruna okkar. Nú er hafinn risa leikur en hann felst í pólitík,Ísland v.s Bretland og Holland. Hljómar skelfilega, eins og skít tapaður leikur. Ólafur Ragnar fór fyrir landinu okkar á BBC og ég stóð mig að því að segja YESSSSS þegar hann skaut á þetta frábæra lýðræði Breta og Hollendiga,það setti þennan spyril algerlega út af laginu og að endingu kom allt fram frá Ólafi, lýsing á vilja Íslendinga og samkomulagsins. Hann stóð sig vel, Össur fékk ráðherra Breta til að dempa niður hræðsluáróðurinn og vonandi tekst Steingrími jafn vel í Danmeku og Noreg, hann kann að rífa kjaft það kemur sér stundum vel ef maður er ekki reiður heldur einfaldlega málefnanlegur líkt og Ólafur var í umræddu viðtali. Þessa atburðarás sem er nú í gangi vil ég kalla hálfleiksræðu fyrirliða og þjálfara í leik þar sem við erum undir og höfum verið tvístrað lið í fyrrihálfleik.

Þá eru framkvæmdar innáskiptingar sem kemur mótherjanum á óvart. Við setjum á laggirnar nýja samninganefnd og breytum leikkerfinu úr vörn í sókn. Það gerist þegar Steingrímur J kemur heim með svör svokallaðra frændur okkar Sick Hringir 14-2 einhverjum bjöllum hérna !

Yfirmaður nefndarrinnar,sem fylgir eftir öllum viðræðum og stýrir sóknarleiknum EVA JOLY. Hún kallar til 2 af sínum hörðustu samningamönnum eða konum til að framfylgja því sem hún treystir fyrir okkur og talar við fjölmiðla aðeins hún , INDEFENCE hópurinn hefur 1 fulltrúa til að upplýsa okkur Íslendinga um gang mála og benda á sínar skoðanir.Alþingi kallar til 2 nefndarmenn sem fulltrúa Alþingis,lögfræðing sem við teljum vera þann besta í deilum sem þessari, svo fulltrúa úr þinginu, formaður fjárlaganefndar,fjármálaráðherrra eða kosið innan þingsins um hæfasta manninn af þessum 63 til að vera með.Alþingi hefur svo ICESAVE-nefnd innan þingsins sem skipar fulltrúa úr öllum flokkum sem verður að standa saman til þess eins að bera fréttir til þingsins og vinna þá vinnu sem til þarf hratt og örugglega með lögfræðingum sem nefndin ræður til sín..

Þá erum við komin með 6 fulltrúa. 3 erlenda og óhlutræga í íslenskri pólitík, 1 sem hefur haft skoðanir á ICESAVE málefnanlega frá upphafi og 2 frá hinu háa Alþingi sem valdir eru af þinginu sjálfu. Í hálfleiknum ,höfum við haft tíma til að jafna okkur á reiðinni,illskunni í garð hvors annars.Nú skiptir ekki máli D_S_B_O_VG_utanflokks bara Í-S-L-A-N-D eða X-ÍSLAND.

Upp með sokkana,setjum upp legghlífarnar og spennum beltin, seinni hálfleikur er að hefjast. Gangi ykkur rosalega vel öllsömul.

ÁFRAM ÍSLAND

 


mbl.is Joly harðorð í garð Hollendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Twilght Zone !!!!!

Sammála um að lágmarka ókyrrð. Ef ríkisstjórnin hefði ákveðið að vinna hlutina faglega þá hefði hún verið búin að lágmarka ókyrrðina einfaldlega þannig að hún hefði getað verið búin að undirbúa sig undir Já eða Nei.Hvorugt var gert og það er bensínið sem sprengdi um ókyrrðina. Í mörgum blöðum í UK eru svo hrykalega margir bretar búnir að commenta um niðurrifs greinar höfunda dagblaðanna, það skýn í gegn að við fáum ótrúlega mikinn skilning á aðstöðu okkar. Ég hvet fólk til að lesa t.d bloggin á Telegraph,Skynews ofl.það segir manni það að ef við hættum þessu væli og reiði þá náum við betri samningum það er alveg ljóst. Ef við ætlum hinsvegar að vinna svona ófaglega áfram þá fáum við fólki ytra á móti okkur líka og þá er staðan vond,Bretar kunna betur en við að mótmæla. Denni J og Jóa sættið ykkur við Lýðræðislega niðurstöðu og farið að vinna með fólkinu, þetta er ekkert privat party sem kemur til að gera ykkur að dýrðlingum,finnið annan vetfang í það.


mbl.is Sammála um að lágmarka ókyrrð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg ömurleg frammistaða ríkisstjórnarinnar.

Hvernig má það vera að engin frétta tilkynning hafi verið klár hvort sem Ólafur samþykkti eða ekki.

Við lítum hrykalega illa út í erlendum fréttamiðlum. Þar stendur allsstaðar að við ætlum ekki að greiða til baka.Það hefði verið ágætt þar sem ríkisstjórnin vissi í morgun að Forsetinn skildi neita, að semja ekki yfirlýsingu eru afglöp og ömurleg frammistaða.


Grátleg niðurstaða...þetta fólk ætti að skammast sín.

það eru eflaust einhverjir stjórnarliðar sem standa nú og skála í kampavíni fyirir því að ríkisstjórnin haldi velli og ömurlegasti samningur gagnvart sjálfstæði Íslendinga hefur verið staðfestur af fólki sem er fulllt af hatri gagnvart fyrri stjórn og einum flokki.Með hatur í huga horfa menn oft langt frá samvisku og innra hjarta,þetta er ég að upplifa þegar ég les athugasemdir stjórnarliða.Ég horfi til dagsins 1944 þegar við urðum fullvalda þjóð og jafnframt 1994 þegar hátíðin á Þingvöllum fyrir 50 ára afmæli okkar var haldin með glæsilegum hætti og meiriháttar þáttöku landsmanna. Ég vil fordæma áliktanir og athugasemdir nokkura aðila sem undirstrika það sem ég er að fara.

SJV„Að endurreisn Íslands, sjálfstætt og velmegandi í samfélagi þjóðanna muni verði sönnunin. Ég mun reyna að leggja mitt að mörkum að svo verði meðan lífsandinn höktir í nösum mér og ég má vinna Íslandi nokkuð gagn." Þessi maður hefur verið staðin af lygi frá upphafi og hefur verið svo hrokafullur í allri umræðu að endurspeglun hans á hatri sínu gagnvart D flokki bitnar á íslesku lýðræði.

Björn V Gísla, frá því að þú opnaðir munninn á þér í Október sl. þá hefur þú aldrei talað eins og maður sem veist eitthvað um málið, þú eltir umræðuna eins og blindur hundur sem hefur þefskyn á beini frá húsbónda og veist vel að ef þú hlíðir þá færðu að sofa til fóta.

Guðbjartur Hannesson, kemur mér spánskt fyrir sjónir, ég hélt hann staðfastann náunga en því miður þá er hann gulrótarTaxi í handjárnum Jóhönnu Sig.

Lilja Rafney ! Að vitna í frelsarann er lágkúrulegt og þú sannaðir með þessum orðum þínum að Alþingi Íslands er svo langt frá því að vera vettvangur fyrir þig að manni vöknar um augun. farðu í fokking Krossinn með fullri virðingu. Þar er 1 predikari og 1 stefna eins og í Vg.

Maggi Orri ,,, einfalt þú veldur mér vonbrigðum sem skáta.

Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að" mistekist hefði að afgreiða þetta mál þannig að sómi væri að. Það væri hins vegar upphafið að nýrri byrjun með því að samþykkja frumvarpið" Þessar setningar dæma sig sjálfar ef þú byggir hús sem er hornskakt þá er það ónýtt hús,en ekkert andskotans upphaf frá hæsnakofanum úti í garði.

Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður, sagðist samþykkja nauðungarsamning fullur trega en minnti jafnframt á að sú lagalega skuldbinding, sem fylgi nauðungarsamningum, sé einskis virði.Þegar ég var staddur að Borgartúni 3 í febrúar 2008 og Borgarahreyfingin varð til að hluta óttaðist ég menn eins og Þráinn Bertelsson og fleiri tækifærissinna. Trúiði mér hann fær að launum fyrir atkvæði sitt LISTAMANNALAUN frá SJS. Þvílík vonbrigði með þig Þráinn, taktu pisla þína og troddu þeimm þar sem sólin skín aldrei.

Ásmundur þér hafið brugðist öllum vonum.

 

Nú er bara að treysta á Íslenskan kraft og dug mótmælum þessari þvælu ,með lýðræði okkar að leiðarljósi. Gerum Kampavínið flatt.

Gleðilegt fokking ár Angry

 


Mögnuð uppákoma á Alþingi....

Það er heldur betur búið að dansa darraðardans á hinu hávirðulega Alþingi. 12 tímum fyrir atkvæðagreiðslu bárust þingmönnum NÝ skjöl frá bresku lögmannastofunni.Á meðan að menn héldu ræður í 3ju umræðu gátu aðrir séð sér fært um að lesa sig til um það sem í þessum skjölum voru. Þá gerðist þessi magnaða uppákoma,Utanríkisráðherra átti að vera "skjalfest frá lögmannastofunni" á fundi með þessari ágætu lögmannstofu þar sem átti að hafa komið fram sterkari staða okkar gagnvart Icesave.Utanríkisráðherra kannaðist bara ekkert við þennan fund.Þá átti þetta að hafa verið fulltrúi fjármálaráðherra en fjármálaráðherra kannaðist ekkert við það og ekki heldur þennan fund. Loks óskaði stjórnarandstöðuflokarnir eftir því að fundinum yrði frestað til að fara betur yfir málið með öllum þingflokksformönnum og það tók 30 mín að fá það í gegn. Loks töluðu menn um þingstörf forseta þingsins í aðrar 30 mín um að fresta einfaldlega fundinum. Það tókst á endanum eftir mikla baráttu. Forseti kom þá í pontu og frestaði honum en gaf ekkert í skin hversu lengi,eða hvort atkvæðagreiðsæu yrði seinkað.

Hvurskonar vinnubrögð eru þetta þarna á þessu þingi. En ég tek fram þetta var hin mesta skemmtun.Skemmtilegast var þó það að sjá ráðherrann Steingrím svrja þetta allt af sér og vildi meina að þessi gögn skiptu engu máli varðandi framvindu okkar Íslendinga í Icesave deilunni. Af hverju var þá fundinum frestað.


Mögnuð uppákoma á Alþingi....

Það er heldur betur búið að dansa darraðardans á hinu hávirðulega Alþingi. 12 tímum fyrir atkvæðagreiðslu bárust þingmönnum NÝ skjöl frá bresku lögmannastofunni.Á meðan að menn héldu ræður í 3ju umræðu gátu aðrir séð sér fært um að lesa sig til um það sem í þessum skjölum voru. Þá gerðist þessi magnaða uppákoma,Utanríkisráðherra átti að vera "skjalfest frá lögmannastofunni" á fundi með þessari ágætu lögmannstofu þar sem átti að hafa komið fram sterkari staða okkar gagnvart Icesave.Utanríkisráðherra kannaðist bara ekkert við þennan fund.Þá átti þetta að hafa verið fulltrúi fjármálaráðherra en fjármálaráðherra kannaðist ekkert við það og ekki heldur þennan fund. Loks óskaði stjórnarandstöðuflokarnir eftir því að fundinum yrði frestað til að fara betur yfir málið með öllum þingflokksformönnum og það tók 30 mín að fá það í gegn. Loks töluðu menn um þingstörf forseta þingsins í aðrar 30 mín um að fresta einfaldlega fundinum. Það tókst á endanum eftir mikla baráttu. Forseti kom þá í pontu og frestaði honum en gaf ekkert í skin hversu lengi,eða hvort atkvæðagreiðsæu yrði seinkað.

Hvurskonar vinnubrögð eru þetta þarna á þessu þingi. En ég tek fram þetta var hin mesta skemmtun.Skemmtilegast var þó það að sjá ráðherrann Steingrím svrja þetta allt af sér og vildi meina að þessi gögn skiptu engu máli varðandi framvindu okkar Íslendinga í Icesave deilunni. Af hverju var þá fundinum frestað.


FELLA ICESAVE !!!!

Nú er það algerlega á hreinu að menn verða að fella þetta bölvaða mál á þingi. Það er tækifæri til þess að standa í lappirnar sem sjálfstæð þjóð og sýna fram á það að við látum ekkert þvinga okkur út í óvissuna, það hefur verið gert áður og nú lærum við af því,bankahrunið ætti að hafa verið góð lexía.Nú rétt hangir þetta frumvarp á bláþræði, þá er það augljóst að ríkisstjórnin rétt hangir líka.Það kemur ekki á óvart að Steingrímu J gaf út yfirlýsingar gagnvart ESB og krónuna þvert upp í geðið á Samfylkingunni, hann er farin að hugsa plan B. Stjórnin mun falla og Vg-B og D eru sammála í Evrópumálunum því er þetta sterkur leikur,,,,3ggja flokka stjórn hmmmm eða þá að þessi yfirlýsing sé til að sætta til hinn unga Vg mann Ásmund og fá hann til að kjósa þvert á samvisku sína með Jái. Maður er farin að trúa öllu sko.Ísland stóð í Dönum fyrir sjálfstæði,við unnum þorskastríðið,við lifðum móðuharðindi og sváfum í torfbæum kindna upp með húsdýrum á meðan þessi lönd bjuggu við lUXUS. Við gerðum Ísland að því sem það er með fiski,landbúnaði og síðar iðnaði,verslun og viðskiptum,,, best að við sleppum viðskiptum framvegis.Þegar allt er á botnin hvolft þá unnu Íslendingar fyrir öllu því sem hér er og það hefur verið króna. Segiði NEI Ísland getur staðið þetta af sér líka,,og gefið duglegum Íslendingum færi á að vinna eins mikið og það getur til að komast út úr skuldum en ekki ICESAVE gerum skattfríar tekjur sem unnar eru eftir 150 vinnustunda mánuð. Eða hafa það 5-10%


Er stjórnin að gefa sig.

Ummæli fjármálaráðherra vakti athygli mína s.s"halda í krónuna og vera utan ESB" hvernig þetta mun fara í pilluflokkinn kemur í ljós en það er alveg á hreinu að þessi ágæti fjármálaráðherra hefur nú farið um víðan völl í þessari umræðu.Hann er margsaga og virðist vera orðin utanveltu í þessu samstarfi við samfylkingu.Einnig er ljóst að samfylking er utanveltu gagnvart Vg. Þetta minnir mig á hjónaband sem er algerlega búið í augum allra en hjónin sjálf stoltsins vegna láta líta út sem allt sé í lagi. Það er einfaldlega komin tími til að menn fari að vera heiðarlegir þarna og hætti þessu samstarfi þessi ósamstaða er farin að blasa við fólki en mér sýnist svo vera að völdin eru greynilega svona mikilvæg að  vill vera óheiðarlegt í orðum og gjörðum.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband