Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Handtekinn fyrir að velta blómapotti og háreysti ???

Detti af manni allar dauðar lýs. Er þetta nýjasta stefna ríkisstjórnarinnar,handtökuskipun ef menn ætla að garga á þá.Menn voru ekki einu sinni handteknir fyrir að grýta lögguna og Alþingishúsið í fyrra.Núna er blómapottur og háreysti orðin að heimild til handtöku, maður á ekki til orð.

Það var ein fræg handtaka í búsáhaldarbyltingunni, sem endaði með því að sá sem handtekin var, var borgaður út eftir einhver stórfelld skemmdarverk,eftir mikinn múgæsing og atlögu að lögreglustöðinni á hverfisgötu, rúðubrotum og annað. Þar sást andlit sem var fremst í flokki, hvar er það nú ?,, Er það inni í stjórnarráðinu og er búin að gleyma hvar það var fyrir ári ?


mbl.is Handtekinn við Stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KSI

Þetta var eina niðurstaðan að viti.Auðvitað má svo velta sér upp úr hinu og þessu. Það sem ég set aðallega spurningarmerki við er feministatuðið sem fara óhóflega fram úr öllu varðandi þetta mál.Hverjum er ekki slétt sama um þeirra skoðun,lífið er fjölbreytilegt á milli borga og það þarf engan eldflaugasérfræðing til að segja þeim að það gaufgi lífið að kíkja á hverfin sem sofa aldrei. Þau verða til og munu verða til. Mann greyið hefur tekið út sýna refsingu og er ekki í öfundsverðri stöðu gagnvart þeim sem í kring um hann eru.Feministarnir eru ekki að hugsa um það, hvort fjöldskylda eða aðrir tengdir heyri bullið frá þeim.Heiðarleg niðurstaða KSI og vegni þeim vel í framtíðinni ,,með VISAkortið,,, ég mæli með að menn noti kanski seðla næst. LoL

 


Mesta svindlmark sem ég hef séð.

Menn eru að líkja þessu marki við hið fræga mark Maradonna"hönd Guðs" en munurinn er mikill á þeim. Í fyrsta lagi, þegar aukaspyrnan er tekin er um greinilega rangstöðu að ræða,aðstoðardómarinn sér það ekki sem er athugavert svo greynileg var hún,boltinn fer yfir höfuð þess rangstæða manns og berst að endalínu og er á leið útaf, þegar Henry svindlari(cheater) klappar boltanum svo áberandi og sprynir þarnæst knettinum til Gallas sem skorar.Boltinn hjá Maradonna gat alveg eins farið uppí stúku eða til vintri og hægri en Guðs lukkan kom honum til bjargar og engin sá með neinum hætti að um hendi var að ræða þar fyrr en í endursýningu.Henry svindlari gerði þetta hins vegar mjög vandlega og ótrúlegt að dómararnir gátu ekki séð þetta.Ef menn velta fyrir sér hvort FIFA eða UEFA vilja frekar fá Íra eða Frakka á HM þarf vart að orðlengja,Frakkar eiga að fara á HM sem knattspyrnuþjóð Platinis forseta.Þetta svindl er skömm fyrir íþróttina og fyrir samböndin sem hamra á slagorðinu Fair Play.Írar eiga alla mína samúð, húmbúkkið á bak við stórþjóðirnar standa þarna að baki og við sem íslensk fótboltaþjóð sjáum í þessu tilviki að "við" litlu þjóðirnar eigum ekkert inni hjá þeim. Því er ég alveg sammála R.Keane fyrirliða Íra að forsetarnir báðir Platini og Blatter skáluðu eftir leikinn, en knattspyrnuáhugamenn og eflaust flestir leikmenn voru í sjokki um víða veröld.

KSI og allar smáþjóðir ættu að fordæma þetta atvik skriflega til beggja þessa risa sambanda.Það verður kanski til þess að dómurinn yfir Henry svindlara verður þyngdur það mikið að hann fái ekki að spila á næsta HM og helst aldrei aftur landsleik.

 


mbl.is Írar í sárum eftir ólöglegt mark Frakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi gjörningur kallar á ÞJÓÐAR-ATKVÆÐAGREIÐSLU

Atkvæði manna innan þessarar nefndar eru að mínu mati ótrúverðugar og ýtir undir þá grunsemd mína um pólitískan þrýsting formanna eða formanns flokkanna. Einnig er of mjótt á munum  til að frumvarp af þessari stærðargráðu og alvarleika nái að láta riðjast yfir okkur með ahandafli nokkura manna.Þetta kallast valdníðsla á góðri íslensku og til þess að rifja upp fyrir ykkur þá loguðu eldar í borginni fyrir 10 mánuðum síðan sökum þess.Ég lít svo á að best sé að setja þetta mikilvæga mál í hendur þjóðarinnar og leyfa henni að kjósa um þetta slík er nú skítalyktin. Ekki er hægt að treysta á Forseta vor til að beita NEI-inu sínu en hann sagði NEI við fjölmiðlafrumvarpinu, eftir þrýsting þeirra flokka sem nú sitja við ráðherraborðið, hann mun aldrei neita þessu frumvarpi,ALDREI.

 GUÐ BLESSI ÍSLAND segi ég nú bara ef þetta er hið nýja ÍSLAND.


mbl.is Icesave afgreitt út úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amman,dóttirin og barnabarnið.

Eftir að hafa séð Kastljós í kvöld s.s viðtal Helga við Dögg Pálsdóttur fer maður nú einfaldlega að setja spurningarmeki við íslenskt réttarkerfi. Ef einhver maður, hvort sem hann er starfandi hjá hinu opinbera eða í umboði þeirra mætir inn á gólf hjá einstaklingi og fremur þann gjörning sem var gerður í þessu máli án dóms og laga, hljóta menn að fara spyrja sig hvort lögin í landinu okkar, almennt tal um lögfræði og gildi þeirra fræða, sé þvættingur,ef lögfræðingar okkar hafa ekkert í hið opinbera að gera hvert erum við þá komin.Þetta er ömurlegur gjörningur og sorglegur í alla staði,fyrst og fremst fyrir barnið,það er ekki verið að hugsa um það í þessu ferli það er ljóst.Hvar eru við stödd sem réttarfarsríki er önnur spurnig, hrundi það með bönkunum líka,er ríki og borg orðin yfir lögum hafin? Maður fer einfaldlega að hugsa hvort Ísland sé orðið að þriðjaheims ríki þar sem almúgurinn er hafður í gíslingu af stjórnvöldum, engin lög heldur geðþáttaákvarðanir einhverra manna. Nú byggi ég þessum vangaveltum mínum á orðum Daggar í viðtalinu í kvöld sem var í alla staði vel að staðið,Dögg sem ég veit að er mjög framarlega í þessum málaflokki færi aldrei að byrtast fyrir framan alþjóð ef þessi gjörningur væri með einhverju móti löglegur eða til hagsmuna fyrir barnið, Það undirstrikast að hann sé ólöglegur eða illa staðið að, því að forsvarsmaður barnaverndar mætti til viðtals þessu máli til verndar. Þetta mál er einkar vont fyrir íslenskt réttarfar og það er miður,ef við getum ekki treyst á það sem þegnar í þessu landi er fokið í flest skjól


Beiðni um nauðungarsölu hefst á morgun1 fyrirtaka eða á að fresta aftur ?

Þar sem kjördæmaþingi var skelt á eins og venjulega á þessum tíma árs hafa nokkur atriði farið forgörðum fyrir þessi mánaðarmót eitt af þeim eru svoköllluð "frestun á nauðungarsölubeiðnum fasteigna" hjá Sýslumanni.Á morgun byrjar ballið,fyrsta fyrirtaka mun láta ljós sitt skína á tugum ef ekki hundruð íbúða á landinu og mér skillst að bunkinn sé það stór að öll innheimtufyrirtæki og lögfræðingar hafa setið sveittir að störfum allan október því þúsundir mála eru í farveginum.Hvar er þetta mál statt í kerfinu, er búið að framlengja frestuninni eða á að skella henni fram strax í fyrramálið eða á ekkert að gera,sem kæmi ekkert á óvart reyndar.Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir alla að vita og sérstaklega þá sem eiga við þetta sorglega vandamál að stríða. Getur einhver svarað þessu ?


Að standa á sannfæringu sinni er dugur.

Það verður að hrósa Lilju fyrir það að standa á sínu og muna eftir því fyrir hverju hún áhvað að standa þegar hún bauð sig fram til Alþingis, henni og Ögmundi mættu fleiri taka til fyrirmyndar og láta ekki undan pólítískum þrýsitngi af formönnum sínum. En hvað gerist svo þegar kosið verður jú þeir þingmenn sem eru á móti þessu frumvarpi verða fjarverandi eða skila auðu þegar á hóminn er komið. Það hefur gerst áður og mun gerast aftur.Formenn þessarar láta það ekki gerast að þessu frumvarpi verði hafnað aftur því þá er um stjórnarslit að ræða og ekki vilja VG ráðherrar missa völd sín og verða af veislum. Það hefur sínt sig hingað til eftir að þetta ágæta fólk komdt til valda eru mélefni þeirra farin fyrir bí en eftir standa völdin þeirra og það er greinilegt að þeim líður vel sem valdhafar. Dæmi,, ferstun á verkefnum vegna barnalegrar skoðunar umhverfisráðherra hún tók solo,aðild að ESB þvert á vilja fjármálaráðherra, ekki aukin þorskkvóti vegna þrjósku,heldur lagur til einhver strandveiði sem einfalt er að svindla með og menn gerðu, pressu formanns á ráðherralið sitt sem byrtist í uppsögn Ögmundar en lykilmaður mótmælanna í vetur fékk stöðu sína,að vera á móti erlendra aðila við uppbyggingu atvinnumála er kjánaleg og barnaleg skoðun alstaðr í heiminum eru erlendir aðilar á bak við risafyrirtæki. Þessi Icesavesamningur hefur orðið til þess að menn setja spurningarmerki við framtíðarhorfur okkar og er ekki hvetjandi fyrir þá að koma til landsins því aukaverkanirnar af þessum samningi verður gríðarlegur en heillandi fyrir samfylkinguna sem telu ESB vera lotto vinningur okkar  sem er algert kjaftæði og röklaus þvættingur. Menn ættu að kynna sér aftöðu Spánverja ,Þjóðverja í dag um ESB og auðvitað fleiri þjóðir sem hafa gagnrýnt ESB harðlega.  VIÐ VERÐUM AÐ SEGJA NEI.


mbl.is Getur ekki samþykkt Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband