Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Mjög áhugaverð tillaga sjálfstæðisflokksins um fjármálavanda Íslands.

Nú hefur maður setið og hlustað á þingmenn ræða þessa áhugaverðu tillögu í sjónvarpinu, það er allavega enn hægt að horfa á Þingið í beinni. Ég vil hvetja þá sem geta til að fylgjast með því loksins eru einhverjir að tala í lausnum en ekki að lýsa vandanaum, á þessu er stór munur og ég gef þessu fólki Sjálftæðisflokks sem nú er tekið við fullt hús stiga fyrir framgöngu og nálgun á þessu. Framsókanrflokkurinn er jafnframt á sömu línu og þetta er fagnaðarefni að allt þetta nýja fólk skuli koma fram með slíkum hætti að beinlínis eru ríkisstjórnarflokkarnir í vörn og velta sér enn uppúr því af hverju þetta og afhverju hitt. Flott mál stjórnarandstaða ...

Stjórnvöldin með allt niður um sig.

Það lá alveg kristal tært fyrir að rannsókn Evu Joly myndi kosta mikla peninga, það þarf engum að bregða því upphæðirnar voru kynntar strax. Hvað svo ? Þessir fagurgalar sem náðu því loksins að komast í ráðherrabílana fara engan vegin eftir ábendingum eða tilskipunum þeirra fagmanna sem ráðnir hafa verið. Hingað til er kostnaðurinn mikill og nauðsynlegt er að klára þá vinnu sem hafin er. Því miður hefur þessum tug milljóna vinnu verið fleygt ef Eva hættir, það er hreint út sagt skandall að hálfu forsætisráðherra og það verður að fara að draga fólk til ábyrgðar sökum þessa alls. Ríkisstjórnin er með allt niður um sig varðandi ráðningar ríkissaksóknara m.a fara ekki eftir Joly og Finninn sem átti að fara með rannsókn bankahrunsins hótaði að hætta líka sökum þess að ekki var farið eftir hans ábendingum. 

Ég velti líka fyrir mér enn og aftur, hvað ætla stjórnvöld að gera varðandi krónuna,atvinnumál og uppbyggingu bankanna ef þau hlusta ekki á það fólk sem hefur reynslu og mun meiri þekkingu á þessum málum. Það er komin tími til að þess að fólk skoði það alvarlega hvort það sé ekki best að koma þessari stjórn frá og við fáum erlenda aðila til þess að koma skútunni á réttan kjöl sem byggður er á þingsályktunartillögum kosinna þingmanna og einfaldlega það besta valið. Þetta gengur ekki upp sem verið er að bjóða okkur uppá hérna, þetta er að breytast úr hrollvekju í splatter mynd.


mbl.is Eva Joly íhugar að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað skilur þessi ríkisstjórn ekki

Ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur varðandi það að skuldir heimilanna í landinu væri ekki svo slæm, dæma sig samkvæmt þessu sjálf. Aðgerðir ríkisstjórnarrinnar til þessa hafa brugðist algerlega, vonir okkar um að krónan styrktist með gjaldeyrishöftum og samningur um Icesave virðist engu máli skipta. Þessi ríkisstjórn ætlar að láta okkur borga brúsann með skatahækkunum og launalækkunum.Það verður afar spennandi að sjá á morgunn plan sjálfstæðisflokksins sem lagt verður fyrir á alþingi. Það hljómar vel og er einmitt til þess fallið að vernda heimilin í landinu sem er svolítið annað en það sem nú er að gerast.

VIÐ KVITTUM EKKI UNDIR ÞENNAN ICESAVE REIKNING ÞAÐ YRÐU STÆSTU MISTÖKIN


mbl.is Nærri 19 þúsund á vanskilaskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I-save

Í reykmettuðu fundarherbergi sátu ráðamenn þjóðarinnar og sömdu um einhverja þá mestu skuldakrísu sem við höfum staðið í frammi fyrir. Steini boy gekk fram og mun eflaust vera stoltur og glaður yfir framgangi sínum og beglir sig út sem Mr. I-save. Til hvers erum við að borga þetta yfir höfuð, var ekki hægt að bjóða þeim 30-50% af kröfunni eins og gerist og gengur þegar menn eru á hausnum. Væntanlega lítur Mr.I-save og miss J.S þannig á að við Íslendingar séum svo efnuð að það kemur skattahækkanir eftir helgi og þannig munu þau borga þetta næstu 30 árin. Að semja fyrst og spurja svo finnst mér öfugt farið.


Þau ætla sér að drekkja Íslandi...

Ég hef ritað og tjáð all oft um þessar pólitísku breytingar sem urðu í búsáhaldarbyltingu VG og sannleikurinn er jafnt og þétt að koma í ljós.það er með ólíkindum að hlusta á þetta fólk sem nú ræður. Þar ber mest á orðum formanna ríkistjórnarinnar. Vinur litla mannsins og þeirra sem minnst máttu sig miss J.S hefur ákveðið að varpa fram að skuldir heimilana í landinu séu ekkert eins mikil og menn héldu, hvurslags andsko... kjaftæði er þetta hver samdi eginlega þessa ræðu. Í fyrsta lagi hefur komið fram að hálfu Credit info að um 30000 aðilar reu komnir eða á leið í vanskil og ballið er ekki einu sinni byrjað. Frá og með 1 ágúst hætta mun fleiri að fá laun og engar aðgerðir eru hjá þessari búsáhaldarbyltingu VG. Það féllu einnig oft stór orð hjá Samfylkingu og VG um Big Davíð, hann léti eins og hann ætti bankann og hann var minntur rækilega á að Seðlabanki væri undir forsætiráðuneyti og ríkisstjórnin RÉÐI yfir bankanum, Geir var beitt Þrýstingi á að sparka kalli en allir vita endirinn á þeirri sögu,það sem ég á við er það að bæði forsætisráðherrann okkar miss J.S og búsáhaldabyltingastjórinn Steingímur J komu bara af fjöllum yfir stýrivaxtastefnu Seðlabankans og skildu bara ekki upp né niður í þessu,,, bíddu, bíddu hver réði aftur yfir Seðlabankanum,,,hmmmmm,yfir hverju þykist þessu liði vera hissa á.

Við verðum alltaf ALLTAF fyrir barðinu á þessu valdagræðgislýð sem stormar inn á þing með froðusnakk og fagurgal að vopni. Við hoppum eins og kanínur eftir gulrótinni og erum eins og fífl þegar einhver af þessum köttum sem við kusum komust á þing reins og um landsleik væri að ræða. Margur hélt,að nú væri komin rétta stjórnin og rétta fólkið. Þið megið eiga það ríkisstjórn að þið hafið ollið mér mun meiri vonbrigðum en ég hélt fyrst, ég þóttist vita að við Íslendingar myndum kaupa fagurgalið og búsáhaldarbyltinguna en boy ó boy þetta er einhvert það mesta og versta handrit sem hægt er að komast yfir sem endaði eins og amerísk D mynd "okkar tími er komin".Sick

Kæri fjármálaráðherra, pakkaðu saman og einbeittu þér að allt öðru þú ræður engu fyrir utan það að gjaldeyrishöftin hjá þér dugðu í 14 klukkutíma, allir samningar á vinnumarkaði eru að fjara út. Vegna þess að þér mistekst að koma jafnvægi á krónuna, hvernig í ósköponum ætla menn að rífa upp landið án þess að setja atvinnumálin í gang hérna. Skattahækkanir vildir þú EKKI, ESB vildir þú EKKI. Mér sýnist þú bara engu ráða, utanríkisráðherrann er meira að segja farin að tala ótæpilega um okkar aðild til ESB. Búsáhaldabylting VG verður til þess að drekkja landinu. Við sem viljum vinna og berjast fáum meiri skatta í staðinn og vel á minnst reglur innan ESB hveða á um vinnuskyldu 37.5 tíma á viku ekki satt.Hvernig á fólk að komast af  ? Ég veit þið getið engu svarað bara talað og ruglað því mæli ég með að þið prófið að VINNA að því að koma atvinnumálunum í gang hérna og þar koma inn tekjur í stað þess að drekkja okkur í bölvuðu kjaftæði.

Við höfum komist ágætlega af fram að bankahruni heimsins og við getum auðveldlega farið á réttu brautina ef þið eruð ekki fyrir.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband