Þegar hvítt verður svart og sannleikurinn að lygi !!!
28.8.2009 | 17:09
Hann var maður alþýðunnar,bölvaði EES og bölvaði framtíðar skuldbindingum fyrrverandi ríkisstjórnar, það var satt ! Nú hefur hann troðið inn EES umsókn og kvittað uppá stærstu skuldsetningu Íslendinga fyrr og síðar. Á góðri leið með að slátra fjárhag íslenskra heimila,, það er heilagur sannleikur.Að þykjast ætla að setja skjaldborg um heimilin er lygi !!!
Hún,, ætlaði að berjast fyrir þeim sem minnst máttu sín í þessu þjóðfélagi ,það var eflaust satt þegar hún sagði það, en þegar hún ætlaði að gera það voru orðin tóm og við köllum það hvíta lygi.
Þegar öllu er á botnin hvolft þá hafa forystumenn þessarar ríkisstjórnar haft okkur að fíflum, hvatt okkur að berja á potta og pönnur til að koma fyrrum erkifjendum sínum frá völdum svo hægindastólarnir í ráðherrabústaðnum gætu verið þeirra.
Ef þau væru GOSI þá væri nefið á þeim svo langt að tengja mætti sæstreng á það milli Íslands og Evrópu því það styttist örugglega aldrei.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar þú og þín ungliðahreyfin stóðu með potta og pönnur fyrir framan Alþingi var engin að hugsa um Icesave. Fólk vildi fá svör, fólk vildi sjá Alþingi standa með hendur fram úr ermum og gera eitthvað róttækt. Það tókst........... En í dag þann 30.júní 2009 sem verður lengi í minnum hafður vegna umræðna þess fólks sem tók að sér að rétta þjóðarskútuna við með loforðum sem þau svo loks sviku, þegar ný bónaðir ráðherrabílarnir voru búnir að ferja ykkur 6 ferðir í stjórnarráðið, voru þið búin að gleyma hvaðan þið komuð og af hverju þið voruð í bílnum í fyrsta lagi. Vissulega vorum við komin á hliðina en ef allt sem horfir er mastrið komið í botninn og skútan verður látið liggja á hafsbotni mannlaus sem betur fer, það flúðu allir hásetarnir. Þið hafið EKKERT gert sem við kemur heimilin, EKKERT. Niðurstaðan eftir daginn í dag er 12kr hækkun hjá oliufélögunum, sem á eftir að hafa rosaleg áhrif á flutning til landsbyggðarinnar, til og frá landinu,sem endurspeglast strax eftir 2 vikur í öllum verslunum þegar flutningafyrirtækin hafa hækkað..Niðurstaða dagsins er fréttamannafundur leynifélagsins(allt fullt af leyndó skjölum)en samt staðfesti hann það sem SÉRFRÆÐINGAR OKKAR HAFA VERIÐ AÐ SEGJA (EKKI SAMÞYKKAJA ICESAVE) það hefur engin bakkað með gegnrýni sína þrátt fyrir fundinn. En þið hlustið hvort´eð er ekkert á sérfræðing, það sannaðist einnig í dag. Það hefur líka komið í ljós fyr að okkar erlendu ráðgjafar kvarta yfir því að á þá sé ekki hlustað og hafa hótað að hætta !!!
Þessi vika mun verða frábær fyrir sagnfræðinga því margir hausar munu berjast við Stein-grím og einhverjir munu buguast. Hvort það verður hann sjálfur eða heill þingfokkur kemur í ljós. Ef VG samþykkir samningin hefur flokkurinn svikið og logið upp í opið geðið á kjósendum sínum. Ef þú ætlar að reyna að telja manni trú um það að kosningarnar í apríl snérust um Icesave ertu einfaldlega að ljúga. Kosningarnar í vor snérust um uppreisn fólksins í landinu sem heimtaði nýjar kosningar og fengu að refsa sínum flokkum fyrir það sem gerst hafði kosningarnar vour sigur fyrir lýðræðið. Nú ert þú að upphefja flokkin VG á fáránlegan máta, og ég get alveg ýmindað mér að VG verður aftur næst minnsti flokkurinn á landinu því það er alveg klárt að þið getið ekki(sem kemur manni á óvart) staðið við þann málflutning sem fyrir kosningar komu úr ykkar munni.Ég ætla að vona að þessi mikilvægi samningur verði felldur og í versta falli fari í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Svavar Gestsson sá ágæti maður er algerlega vanhæfur sem formaður nefndarinnar og dómgreyndarleysi ykkar undirstrikar ráðningu hans á þessu máli. Ef hann hefur verið ráðinn af fyrri stjórn þá var það glapræði líkt og margt annað. Fáum fagfólk sem ekki hefur pólitískt atkvæði á bak við sig í þingsal til að semja að nýju. Því þessi vinnubrögð ykkar gerir mann pakk saddan af helv.... spillingunni hérna.
![]() |
Þjóðin kaus um Icesave í apríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mjög áhugaverð tillaga sjálfstæðisflokksins um fjármálavanda Íslands.
11.6.2009 | 13:27
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnvöldin með allt niður um sig.
11.6.2009 | 00:47
Það lá alveg kristal tært fyrir að rannsókn Evu Joly myndi kosta mikla peninga, það þarf engum að bregða því upphæðirnar voru kynntar strax. Hvað svo ? Þessir fagurgalar sem náðu því loksins að komast í ráðherrabílana fara engan vegin eftir ábendingum eða tilskipunum þeirra fagmanna sem ráðnir hafa verið. Hingað til er kostnaðurinn mikill og nauðsynlegt er að klára þá vinnu sem hafin er. Því miður hefur þessum tug milljóna vinnu verið fleygt ef Eva hættir, það er hreint út sagt skandall að hálfu forsætisráðherra og það verður að fara að draga fólk til ábyrgðar sökum þessa alls. Ríkisstjórnin er með allt niður um sig varðandi ráðningar ríkissaksóknara m.a fara ekki eftir Joly og Finninn sem átti að fara með rannsókn bankahrunsins hótaði að hætta líka sökum þess að ekki var farið eftir hans ábendingum.
Ég velti líka fyrir mér enn og aftur, hvað ætla stjórnvöld að gera varðandi krónuna,atvinnumál og uppbyggingu bankanna ef þau hlusta ekki á það fólk sem hefur reynslu og mun meiri þekkingu á þessum málum. Það er komin tími til að þess að fólk skoði það alvarlega hvort það sé ekki best að koma þessari stjórn frá og við fáum erlenda aðila til þess að koma skútunni á réttan kjöl sem byggður er á þingsályktunartillögum kosinna þingmanna og einfaldlega það besta valið. Þetta gengur ekki upp sem verið er að bjóða okkur uppá hérna, þetta er að breytast úr hrollvekju í splatter mynd.
![]() |
Eva Joly íhugar að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað skilur þessi ríkisstjórn ekki
10.6.2009 | 13:40
Ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur varðandi það að skuldir heimilanna í landinu væri ekki svo slæm, dæma sig samkvæmt þessu sjálf. Aðgerðir ríkisstjórnarrinnar til þessa hafa brugðist algerlega, vonir okkar um að krónan styrktist með gjaldeyrishöftum og samningur um Icesave virðist engu máli skipta. Þessi ríkisstjórn ætlar að láta okkur borga brúsann með skatahækkunum og launalækkunum.Það verður afar spennandi að sjá á morgunn plan sjálfstæðisflokksins sem lagt verður fyrir á alþingi. Það hljómar vel og er einmitt til þess fallið að vernda heimilin í landinu sem er svolítið annað en það sem nú er að gerast.
VIÐ KVITTUM EKKI UNDIR ÞENNAN ICESAVE REIKNING ÞAÐ YRÐU STÆSTU MISTÖKIN
![]() |
Nærri 19 þúsund á vanskilaskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
I-save
6.6.2009 | 13:20
Í reykmettuðu fundarherbergi sátu ráðamenn þjóðarinnar og sömdu um einhverja þá mestu skuldakrísu sem við höfum staðið í frammi fyrir. Steini boy gekk fram og mun eflaust vera stoltur og glaður yfir framgangi sínum og beglir sig út sem Mr. I-save. Til hvers erum við að borga þetta yfir höfuð, var ekki hægt að bjóða þeim 30-50% af kröfunni eins og gerist og gengur þegar menn eru á hausnum. Væntanlega lítur Mr.I-save og miss J.S þannig á að við Íslendingar séum svo efnuð að það kemur skattahækkanir eftir helgi og þannig munu þau borga þetta næstu 30 árin. Að semja fyrst og spurja svo finnst mér öfugt farið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þau ætla sér að drekkja Íslandi...
6.6.2009 | 01:04
Ég hef ritað og tjáð all oft um þessar pólitísku breytingar sem urðu í búsáhaldarbyltingu VG og sannleikurinn er jafnt og þétt að koma í ljós.það er með ólíkindum að hlusta á þetta fólk sem nú ræður. Þar ber mest á orðum formanna ríkistjórnarinnar. Vinur litla mannsins og þeirra sem minnst máttu sig miss J.S hefur ákveðið að varpa fram að skuldir heimilana í landinu séu ekkert eins mikil og menn héldu, hvurslags andsko... kjaftæði er þetta hver samdi eginlega þessa ræðu. Í fyrsta lagi hefur komið fram að hálfu Credit info að um 30000 aðilar reu komnir eða á leið í vanskil og ballið er ekki einu sinni byrjað. Frá og með 1 ágúst hætta mun fleiri að fá laun og engar aðgerðir eru hjá þessari búsáhaldarbyltingu VG. Það féllu einnig oft stór orð hjá Samfylkingu og VG um Big Davíð, hann léti eins og hann ætti bankann og hann var minntur rækilega á að Seðlabanki væri undir forsætiráðuneyti og ríkisstjórnin RÉÐI yfir bankanum, Geir var beitt Þrýstingi á að sparka kalli en allir vita endirinn á þeirri sögu,það sem ég á við er það að bæði forsætisráðherrann okkar miss J.S og búsáhaldabyltingastjórinn Steingímur J komu bara af fjöllum yfir stýrivaxtastefnu Seðlabankans og skildu bara ekki upp né niður í þessu,,, bíddu, bíddu hver réði aftur yfir Seðlabankanum,,,hmmmmm,yfir hverju þykist þessu liði vera hissa á.
Við verðum alltaf ALLTAF fyrir barðinu á þessu valdagræðgislýð sem stormar inn á þing með froðusnakk og fagurgal að vopni. Við hoppum eins og kanínur eftir gulrótinni og erum eins og fífl þegar einhver af þessum köttum sem við kusum komust á þing reins og um landsleik væri að ræða. Margur hélt,að nú væri komin rétta stjórnin og rétta fólkið. Þið megið eiga það ríkisstjórn að þið hafið ollið mér mun meiri vonbrigðum en ég hélt fyrst, ég þóttist vita að við Íslendingar myndum kaupa fagurgalið og búsáhaldarbyltinguna en boy ó boy þetta er einhvert það mesta og versta handrit sem hægt er að komast yfir sem endaði eins og amerísk D mynd "okkar tími er komin".
Kæri fjármálaráðherra, pakkaðu saman og einbeittu þér að allt öðru þú ræður engu fyrir utan það að gjaldeyrishöftin hjá þér dugðu í 14 klukkutíma, allir samningar á vinnumarkaði eru að fjara út. Vegna þess að þér mistekst að koma jafnvægi á krónuna, hvernig í ósköponum ætla menn að rífa upp landið án þess að setja atvinnumálin í gang hérna. Skattahækkanir vildir þú EKKI, ESB vildir þú EKKI. Mér sýnist þú bara engu ráða, utanríkisráðherrann er meira að segja farin að tala ótæpilega um okkar aðild til ESB. Búsáhaldabylting VG verður til þess að drekkja landinu. Við sem viljum vinna og berjast fáum meiri skatta í staðinn og vel á minnst reglur innan ESB hveða á um vinnuskyldu 37.5 tíma á viku ekki satt.Hvernig á fólk að komast af ? Ég veit þið getið engu svarað bara talað og ruglað því mæli ég með að þið prófið að VINNA að því að koma atvinnumálunum í gang hérna og þar koma inn tekjur í stað þess að drekkja okkur í bölvuðu kjaftæði.
Við höfum komist ágætlega af fram að bankahruni heimsins og við getum auðveldlega farið á réttu brautina ef þið eruð ekki fyrir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Annars vegar tek ég undir þau orð að það er Guð mildi að ekki fór verr, hins vegar spyr ég hver var efitrlitsaðili á þessari bygginarframkvæmd. Þetta er einfaldlega hlutur sem ekki á að geta skeð. 20 krakkar hrundu niður 2,5 mtr, þetta er framkvæmd sem er gerð af kæruleysi sem hægt er að miða við blindfullann ökumann. Hver stóð á bak við þessa svalarbyggingu, sá þarf að koma fram, einfaldlega vegna þess að sá aðili ætti ekki að fá leyfi til að byggja LEGO hús. Hvurn djöf..... eru menn að pæla þegar um hamar og nagla er um að ræða.
Maður er enfaldlega orðlaus.
![]() |
Féllu 2,5 metra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3 einkafyrirtæki vilja ESB en ekki okkar helstu atvinnuvegir.
28.4.2009 | 01:11
Það var virkilega áhugaverð ESB umræða í kastljósi í kvöld sem sagði manni ýmislegt. Forstjóri Össur hf vildi meina,að það verður stöðnun eftir nokkur ár ef við sækjum ekki um aðild að ESB og Össur hf mun flytja alla sína starfsemi erlendis, sem tæki nokkur ár,ef ekki yrði farið í ESB.Okey það er ömurlegt til þess að vita að okkar góðu fyritæki stilli dæminu upp svona. Þegar Össur var stofnað var íslensk króna og þeim tókst með henni að byggja upp þetta stóra góða fyrirtæki sem við öll getum verið stolt af, einnig má telja Marel og CCP í þessari umræðu þessi fyrirtæki voru við nákvæmlega sömu aðstæður þegar þau voru stofnuð. það er skellur fyrir alheiminn það hrun sem varð bitnar á ESB ríkjum jant sem okkur og öllum heiminum, svo mér finnst ansi mikil einföldun að tala um krónuna sem hinn mesta óvin, þegar fyrirtæki á Spáni,Þýskalandi og fleiri ESB löndum eru að hrynja niður.
Sjávarútvegur okkar hefur verið fram til 2000 okkar stærsti atvinnuvegur við eigum að verja hann, þar er okkar gjaldeyrir sem fyrr.Landbúnaðurinn hefur verið á undanhaldi og við skattborgarar höfum greitt veginn fyrir bændurnar til að hann þrýfist, ég er ekkert mótfallinn því það er örugglega dýrara fyrir okkur að missa landbúnaðinn í atvinnuleysi og fá allt innflutt í staðinn. Bændur í ESB eru ekkert að hæla sambandinu sökum skerðingar á framleiðslu t.d. Ég viðurkenni það að ég vitna bara í viðtöl við erlenda bændur sem hafa tjáð sig og sýnt hefur verið í íslensku sjónvarpi. þetta hafa kanski verið óvildarmenn ESB og séu með áróður. En formaður bændasamtakana tók í svipaðan streng.
Þegar maður dregur þetta saman þá sér maður að íslenskir atvinnuvegir meiga missa sín fyrir skoðannir 3 forstjóra einkafyrirtækja. Með fullri virðingu fyrir þessum góðu fyrirtækjum en það undirstrikar einfaldlega það sem menn eru að hamra á, það verður að upplýsa þjóðina miklu,miklu betur áður en að einn stjórnmálaflokkur sem talar fyrir hönd 28% þjóðarinnar keyri af stað í einhverjar aðildarviðræður sem þjóðin hefur ekkert vit á. Við verðum að stoppa það af með öllum hætti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Annað hvort er stutt eða langt í land.
27.4.2009 | 21:45
Ég er að vona að menn VG sýni taumhald í sinni ESB stefnu eins og venjulega. Ef þau ætla að kvika aðeins frá stefnunni til að vera í stjórn gefur það manni aðra mynd á Steingrími en maður hefur skynjað hann s.s staðfastan orginala sem fylgir samvisku sinni og stendur algerlega á sínum skoðunum. Nú kemur fyrst í ljós hvort baráttan um að komast til valda endurspegli hann sjálfan í fyrsta skipti eða hvort gamli Steingrímur sé enn til. Mér finnst líka allt í lagi að Jóhanna hlusti á lýðræðið og gefi aðeins eftir í sínum kröfum og kynni ESB málin eins vel fyrir þjóðinni og hún kann. Áður en að hún fer af stað í þetta ferðalag sitt.
"Ekki víst að" er auðvitað vandræðalegt svar, spurning hvort hún Jóhanna fái túlkinn sinn til að tala við þjóðina, allavega skil ég ekki svona setningu.
![]() |
Ekki víst að langt sé í land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)