Annað hvort er stutt eða langt í land.

Ég er að vona að menn VG sýni taumhald í sinni ESB stefnu eins og venjulega. Ef þau ætla að kvika aðeins frá stefnunni til að vera í stjórn gefur það manni aðra mynd á Steingrími en maður hefur skynjað hann s.s staðfastan orginala sem fylgir samvisku sinni og stendur algerlega á sínum skoðunum. Nú kemur fyrst í ljós hvort baráttan um að komast til valda endurspegli hann sjálfan í fyrsta skipti eða hvort gamli Steingrímur sé enn til. Mér finnst líka allt í lagi að Jóhanna hlusti á lýðræðið og gefi aðeins eftir í sínum kröfum og kynni ESB málin eins vel fyrir þjóðinni og hún kann. Áður en að hún fer af stað í þetta ferðalag sitt.

"Ekki víst að"  er auðvitað vandræðalegt svar, spurning hvort hún Jóhanna fái túlkinn sinn til að tala við þjóðina, allavega skil ég ekki svona setningu.Shocking


mbl.is Ekki víst að langt sé í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"hefur skynjað hann s.s staðfastan orginala" hvar er hann? hvar hefur hann verið ?

"Ekki víst að langt sé í land" Hún sér í höfn

fer (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 21:59

2 Smámynd: Sturla Snorrason

Það að flokkarnir lengst til hægri og lengst til vinstri séu sammála að ganga ekki í ESB, ætti að hringja einhverjum bjöllum.

Það að stjórnmálaflokkur og fjölmiðlar mesta glæpons Íslandssögunar vilji ganga í ESB ætti að hringja öllum neyðar bjöllum landsins!

Sturla Snorrason, 27.4.2009 kl. 22:19

3 Smámynd: Stefán Óli Sæbjörnsson

Miðað við kastljós í  kvöld liggur í augum uppi að 3 einkafyritæki vilja ESB, en sjávarútvegurinn,landbúaðurinn sem hefur verið okkar aðal atvinnuvegar frá upphafi er alfarið á móti. Það ætti að hringja bjöllum líka.

Stefán Óli Sæbjörnsson, 28.4.2009 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband