Þar hitti andsk... ömmu sína
25.4.2009 | 02:55
Ekki hefði mér dottið það í hug fyrir mánuði að Sigmundur Davíð hefði kastað inn sprengju og hún sprungið í fangið á þessu trúverðuga fólki S og VG. Hjal fagurgalana sem hafa rifið mannorð hjá heilum stjórnmálaflokki, endurspeglaðist svo í kvöld þegar Sigmundur vitnaði í skýrslur sem enginn hafði séð . Þetta eitt staðfestir svo margt í sambandi við skrif mín frá upphafi plottsins hjá núverandi ríkisstjórn. Ég veit að valdagræðgin er svo mikil hjá mörgum af þeim sem þar sitja að ekkert mun koma mér á óvart eftir kosningar. Ég hef nokkrar spurningar áður en miðinn minn fer í kassann.
9.Mai hefði verið góð tímastening fyrir kosningarnar, afhverju 25 apríl og skýrslan verður byrt síðar í stað 15.Apríl. Þetta vekur grunsemdir.
Samfylking hótaði stjórnarslitum ef D samþykkti ekki á landsfundi aðlild að ESB strax., hver er munurinn á V lista.
Hvernig ætla þessir flokkar að vinna saman í atvinnumálum,hver verður niðurstaða þeirra í svo ólíkum áherslum annar með virkjunum en hinn ekki.
Hvað á að einkavæða og hvað ekki.
Greiðsluaðlögunar plan ykkar er út í hött, það byrjar að virka í mai, þú þarft lögfræðing sem kostar a.m.k 10.þús á tímann ef ekki ferðu á hausinn í október.
ESB er ekki lausn, það er hægt að vinna niður vexti og verðbætur án þess að vera í ESB.
Að lokum bankarnir eru að hrynja aftur, hvað er á dagskrá hjá fagurgölunum eftir helgi. Hvernig ætlið þið að koma atvinnumálunum í gang ?Þegar þið eruð búin að hóta sjávarútvegnum einnig hvert stefnið þið með atvinnulíf okkar.
Ég hef enga trú á þessu
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.