"Davíð er í Seðlabankanum"

 

Hvað er eginlega í gangi hjá ykkur í stjórnarráðinu, um hvað talið þið þegar ákvarðanir eru teknar. Þessi ábending hefur verið rædd í 3 mánuði en svo virðist sem þið hafið ætlað að hunsa þær reglur og þau lög sem eru til varðandi seðlabankastjóra. Höfum við tíma í þetta,, ég bara spyr  eða á Ísland að fara að hunsa mannréttindi og byrja með sveðjuna á hvern sem er án þess að hafa lagalegar heimildir. Þetta hræðist ég, ef reiðin og heiftin er farin að stjórna þeim ákvörðunum sem eru teknar í stjórnarráðinu. Til hvers var verið að skipta um stjórn, þið eruð með allt í rugli. Þessi stjórn sem ætlaði að redda öllu en gerir ekki nokkurn skapaðan hlut nema að fokka upp enn frekar.

Hvað ætlar þessi ríkisstjórn að gera t.d varðandi gengisþróun,  hefur hún tekið eftir því að gengisvísitalan er 194.stig.  Eða er hún of upptekin við það að Davíð er í seðlabankanum. Það er kanski besta afsökunin fyrir ykkur sem ekkert gerið,,  "Davíð er í Seðlabankanum"


mbl.is Þarf að hugsa málið upp á nýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanhæf ríkisstjórn !!!!!

 

Þessi frétt kemur mér jafn mikið á óvart og sól skín á sumrin. Það hefði verið full áhættusamt fyrir Samfylkinguna að fara út í þessa umræðu að fyrrabragði vegna þess að hún er umdeild, Samfylkingin fer ALDREI út í það, Samfylkingin segir það sem fólk vill heyra. Ekki batnar það þegar VG eru handjárnaðir við tvístígandi flokkinn. Ég er mjög þakklátur fyrir það, að þessir flokkar sem mynda þessa ríkisstjórn hafa sýnt að og sannað á 10 dögum að það má vera kraftaverk að þeir nái að gera það sem þarf að gera fram að kosningum, en það er yfirnáttúrulegt að þeir haldi þetta út.

Auðvitað á að veiða hval, bara í ljósi þess að hann étur þvílíkt af þorski, einnig er hvalur farinn að sýna skipstjórum ný fiskimið. Það er hinsvegar spurning hvort leyfi fáist til að verka hvalinn í Hvalfirði eða í frystihúsi. Hver man ekki eftir sunnudagsrúntinum í Hvalfjörðin að skoða þegar menn voru að verka svo endaði dagurinn á ís í Botnskálanum :)

Kreppan er ekki bara slæm .....................


mbl.is 36 þingmenn vilja hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað fækkar

 

Vitiborið fólk fer ekkert að mótmæla þarna, enda eru þessi mótmæli fáránleg frá upphafi til enda. Seðlabankastjórnin er að hætta þetta er spurning um smá tíma. Það þarf að breyta lögum, mér sýnist það ætli að taka töluverðan tíma þar sem að ný ríkisstjórn vinnur endalaust með handabakinu. Sendingin á þessu bréfi til bankastjóranna er t.d gott dæmi um slík vinnubrögð. Mér finnst að fólk ætii a fara að mótmæla aftur fyrir framan Alþingi því þar er ekkert að gerast sem snýr að heimilunum, einbeitingin er að hreinsa út úr stjórnsýsluembættum, sem er engin hagur fyrir fjöldskyldur.


mbl.is Fækkar við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð er maðurinn.....

Þetta er að verða einhver sá fyndnasti farsi sem upp hefur komið á Íslandi, trúbatorinn er að mótmæla einhverjum kalli niður í bæ á meðan að heimili manna eru í óvissu. Hvað eru menn að spá hérna, hættiði að velta þessum manni fyrir ykkur hann hættir hvort er á endanum.
mbl.is Mótmælt við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kappleikurinn milli davíðs og golíats.

Kappleikurinn milli davíðs og golíats

Á fyrstu mínútu fær davíð vítaspyrnu múgurinn ærist af spennu, davíðs liðið hefur ekki sigrað í 18 ár davíð spyrnir og skorar af öryggi. Leiknum lauk 1-0. davíðsliðið vann Reykjavíkurmótið í kappleik loksins og sigurhátíðin er gífurleg. golíatsliðið er ekki mikið gefið fyrir þennan davíð enda askolli góður í kappleikjum. Ekki líður að löngu en að davíðsliðið vinnur 12 ár í röð Reykjavíkurmótið.golíatsliðið er alveg orðið brjálað út í davíðsliðið og fer að sameina lið til að geta unnið davíðsliðið, því hann kemst alltaf í blöðin með myndum af sér, en engin úr golíatsliðinu fær eins mikla athygli og davíð fyrirliði. Á meðan að golíatsliðið er á bak við tjöldin að sanka að sér öðrum liðum til sameiningar fær davíð hugmynd.davíð vill verða íslandsmeistari í kappleikjum hann er búin að vinna svo marga reykjavíkurtitla,og kveður reykjavíkurmótið með tilheyrandi athygli, það mikilli athygli að engin tók eftir sameiningu golíatsliðsins. rétt er að taka fram að golíatsliðið vann svo loksins reykjavíkurtitilinn en íslandbikarinn vann davíð aftur og aftur hann baðaði sig í metalíum. davíð var orðin frægasti kappleikjamaður íslands.golíat var orðin reiður og abbó, þegar maður er reiður og abbó taka menn alltaf rangar ákvarðanir, það vissi davíð og skoraði aftur og aftur á leik við golíat sem tapaði sem endra nær. nú var davíð orðin þreyttur og vildi hætta að vera í kappleikjum og fór í samband kappleikja sem gjaldkeri það þoldi golíat ekki og varð bál reiður. Allir í golíatsliðinu vildu davíð burt úr kappleiknum þannig að golíat fengi einhverja athygli, en sem og oft áður tókst það ekki. 

Áhorfendurnir tóku skyndilega eftir því að allt er nú ekki sem sýnist með davíð og golíat og vilja fá fleiri lið til að keppa og mótmæla við völlinn, golíat segir að davíð sé búin að skemma kappleikinn og davíð sé búin að eiðileggja allt, allir úr sameinaða golíatsliðinu vilja davíð burt úr sambandinu en davíðsliðið vill það ekki , hvað gerist þá. Þar stendur hnífurinn í kúnni davíð er of vinsæll og golíat er of reiður og abbó, golíat hefur brennt sig áður á því að taka ákvarðanir undir þannig kringumstæðum,,, nú er gaman að vera áhorfandi .

Íslensk pólitík er orðin að gríni.

Þegar ég var í barna og grunnskóla lærði maður að bera virðingu fyrir þinginu og öllu því sem þar fór fram. Hvernig það varð til, hvað okkar forfeðrum tókst með ótrúlegum hætti að gera í sjálfstæðisbaráttunni. Þessi örlitla eyja í Atlandshafinu sigraði Danmörk og var fullvalda ríki. Landhelgi Íslendinga 250 sjómílur, unnum þorskastríðið og unnum silfur á olympiuleikunum. þetta gerir mann að stoltum íslendingi. Og það er skilda okkar að gleyma ekki hvaðan við komum og hver við erum. Ég held að almenningur sé með þetta á hreinu enda vinnur sá sem vetlingi getur valdið 130% vinnu því það er og mun alltaf vera dýrt að vera íslenskur. Hverjir gleyma þessum gildum og virðingunni fyrir forfeðrum og Alþingi?  Jú ótrúlegt enn satt þingmennirnir SJÁLFIR. Þingmenn,ráðherrar og sjálfur forsetinn(sá er nú situr, enginn annar). Hvað hefur maður horft uppá, frá sjónvarpsútsendingum frá hinu háa Alþingi,jú,, dónaskap,algert virðingarleysi,ómálefnanlegar umræður fram á nætur og fullorðið fólk rífandi kjaft við hvort annað. Ég get nú ekki annað sagt en þetta , það kemur manni akkúrat ekkert á óvart að þessi staða sem nú er uppi í íslenskri pólitík sé á þennan veg komin. Hver höndin uppi á móti annari, fólk er svo mikið í mun að vera þvert og þrjóskt að íslenskar fjöldskyldur og fyrirtæki eru svona eitt af öðru að gerast gjaldþrota, bankarnir eru tómir af peningum fyrir atvinnuveginn, ríkið á ekki cent til að passa upp á 250 milurnar,vinna forfeðra okkar er væntanlega að detta uppfyrir því okkur verður sennilega ekki bjargað nema undir öðrum hentifána tímabundið. Skál fyrir því herra forseti, lausnin kom einmitt úr bústað hans að Ísland yrði að  " litla DUBAI ". Ég er ekki hissa á því að helstu fjölmiðlar heimsins eru farnir að vera með ritara hérna á Fróni því að íslensk pólitík er orðin að algeru gríni ,,, alheims gríni. Það er sárgrætilegt, fallvötnin,jöklarnir,norðurljósin,heita vatnið, fiskurinn og hreint Ísland er orðið að gríni úti í heimi vegna þess að þeir sem eru að stjórna hérna hugsa bara um rassgatið á sjálfum sér eins og kappleik sé um að ræða. Þið gleymduð öllum gildum, landinu og fólkinu, þið öll þið sem eruð að passa land okkar og þjóð.

Hverjum er treystandi til að bjarga okkur úr ykkar höndum ? Jú við hin getum það, það þarf  greynilega ekki að vera neitt brjálæðislega skýr til að sitja á þingi hvað þá í ráðuneyti, þú þarft bara að geta sagt réttu hlutina,eins og góður sölumaður !


Frábært Davíð eða ömurlegt Davíð ?

 

Ég hef enga lagalega þekkingu á ráðningarmálum Seðlabankans hvað þá heldur rétt þeirra sem starfa þar. Ég spurði oft að því hvort ástæða væri til þess að Davíð segði af sér, sumir sögðu já aðrir sögðu nei. Ef Davíð og fjöldskylda hans heyrir í fjölmiðlum af innihaldi bréfs frá forsætisráðherra til hans er víða pottur brotinn hjá nýjum ráðherra. Ef bankastjórar eru með ráðningasamning í 7 ár set ég alvarlega athugasemd við bréfið sem honum barst og óskina sem í bréfinu var.

 Ef forætisráðherra getur með einu bréfi rekið bankastjóra af hverju gerir hann það þá ekki, til hvers að fara þessa leið.Davíð er ekki sammála því að hafa staðið sig illa, það eru ekki allir sammála því. Ef forsætisráðherra er ekki sátt/ur með störf bankastjóra á hann einfaldlega að reka þá. þannig að mér finnst á báða vegu þetta mál hið furðulegasta og undirstrikar öll mín skrif um samsæriskenningar gegn sjálfstæðisflokknum hjá minnihlutahópum. Hver var tilgangurinn, á stjórnarslitunum og hvernig á þessi leðjuslagur að gagnast okkur sem eru að reyna að þrauka milli mánaða. Þið ættuð ÖLL að skammast ykkar og drullast til að segja af ykkur. Slíkur er andskotans skítafnikurinn af kökunni sem hófst í bökun vestur í Borgarnesi með ræðu Ingibjargar Sólrúnar. Flokkapólitík er úr sér gengin,gegnsósa af spillingu og valdagræðgi. Enn og aftur segi ég og skrifa við þrælar þessa lands borgum undir ykkur sukkið og svínaríið á meðan þið tottið vindla og étið kavíar í hinu háa Alþingi við erum höfð að háði og spotti.  Samt brosum við fram í tilveruna og segjum " þetta reddast". Vitandi það að hver stjórinn á fætur eftir öðrum er blindfullur.


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er komin ný hreyfing á facebook,

Við erum hópur fólks á öllum aldri sem munum ekki styðja nýja ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Hvorki núna né á komandi árum.

Ekki tók þetta langan tíma, glöggir menn sjá strax í gegnum þessa skrítnu leikfléttu.

Þetta kemur engum á óvart...það er búið að draga þjóðina í standpínukeppni milli flokka

Þessi leikflétta samfylkingarinnar sem staðið hefur í nokkrar vikur,eða síðan að þau sáu fram á það að flokkurinn var að verða óvinsælastur, kemur bara alls ekki á óvart. Við kjósendurnir fengum það svo sannarlega leikféttur í andlitið á síðasta ári frá þessum flokkum í (borginni), þetta minnir óneitanlega á tjarnakvartetts sápuópru samfylkingarinnar til að ná völdum þar. Er samfylking komin í standpínu keppni um það hver er mestur og sterkastur allra flokka á kostnað okkar skattgreiðenda. Nú bíðum við eftir útspili sjálfstæðisflokksins hann lætur sig ekki hverfa ef marka má þeirra útspil í borginni s.l sumar og þegar þeim tekst að stinga S í bakið á móti, verður allt vitlaust aftur og samfylkingi fer í hártoganir við D.Samfylking var alveg jafn svekkt yfir að missa tökin í borgarmálunum þegar D listinn tók yfir með B. Ég verð bara að viðurkenna það, ég er alveg búin að fá nóg af þessari vitleysu sem sníst eingöngu orðið um valdagræðgi og skítaplottum ykkar stjórnmálamanna, þið hugsið um kjósendur síðast af öllu, það er sannað og það var undirstrikað núna með þessari leikfléttu. Ég sem hélt að nýr formaður B kæmi með nýtt útspil, silly me, Vinstri grænir herjuðu á þjóðstjórn,silly me, F listi er þarna bara og standur á sínum málum, þeir hafa þó ekki enn verið staðnir að plotti ag valdníðslu. D listi, bíðum og sjáum eftir þeirra útspili en það er alveg ljóst að stæsti og vinsælasti stjórnmálaflokkur Íslands lætur ekki koma svona fram við sig ekki frekar en í borginni, þeir eru að brýna hnífasettið . S listi, sama gamla splundrið sem rígheldur í völd sama hvað það kostar.

Við erum að upplifa tveggjaflokka valdabaráttu D og S ár eftir ár.Við verðum vitni af hverju skítabragðinu hjá þeim báðum í garð hvors annars, er þetta það sem við viljum, er þetta virkilega þeir starfshættir sem við viljum haga okkur á okkar vinnustöðum, alla vega kemur þetta Íslandi ekkert við og okkar hagsmunum kjósenda,þetta er eitthvað allt annað og dýpra.

Ég er farinn að ná í Helv....fokking fokk.. skiltið


mbl.is „Ótrúlega ómerkilegt“ af Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

What goes around comes around !!!

Svon a er nú þetta allt saman, oft þegar maður grefur undan öðrum hrynja menn sjálfir ofan í holuna. Auðvitað fara menn ekki sáttir frá borði sem vara formenn,  þessi flokkur er bara mun meira í rúst en menn halda, vandamálið er bara það að þeir fara með allt vald fyrir næstu ríkisstjórn og fengu það sem þeir vildu. Það á allt ryk eftir að setjast bíðum bara..
mbl.is Ágúst Ólafur hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak.

Ég held að þetta sé eitt af nokkrum jákvæðu fréttunum sem áttu að koma í þessari viku, en samfylkingin í molum sáu sér ekki fært um að bíða með að plotta sig áfram til að ekki sægist hvursu flokkurinn er tvístraður á kostnað sjálfstæðisflokksins sem var jú aðvelt skotmark. Þetta er bara of seint Einar.
mbl.is Hvalveiðar leyfðar til 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband